Um okkur


Fasteignasalan Ársalir ehf var stofnuð árið 1992 og er því að halda upp á 30 ára starfs afmæli um þessar mundir. Stofnandi Ársala Björgvin Björgvinsson löggiltur fasteignasali var ráðinn sem sölumaður árið 1988 hjá Atla Vagnssyni hdl. og löggiltum fasteignasala. En upphaf Atvinnuhúsa ehf. má rekja til Fasteignasölu Vagns E. Jónssonar sem var umsvifamikil á fasteignamarkaði frá því um 1950 og var lengst af til húsa að Austurstræti 9 í Reykjavík.